Sveit í borg – Álftanes

Garðabær er einstakt samfélag og hvert hverfi innan bæjarfélagsins hefur sína sérstöðu.

Álftanes er eitt af þeim, strjálbýlt sveitaþorp, sveit í borg. Það er mikilvægt að við gætum að sérkennum þess. Umhverfi Álftaness, fuglalíf og söguminjar eru verðmæti sem við þurfum að varðveita áfram. Mikil lífsgæði eru fólgin í því að geta notið útivistar og friðsældar í ósnortinni náttúru í nálægð við heimili sitt.

Gott skipulag hefur ekki aðeins áhrif á það að við komumst örugglega á milli staða heldur hefur það líka áhrif á líðan okkar. Góð tenging á milli hverfa er jafn mikilvæg og tenging við náttúruna. Með betra stígakerfi og bættum samgöngum aukum við öryggi íbúa, barna og fullorðinna.

Félagsauður og vellíðan

Öflugt félagsstarf ber þess glögglega merki að Álftanes er samheldið samfélag þar sem mannauður er mikill. Þetta er mikilvægt. Góðir innviðir, aðstaða og búnaður stuðla að aukinni virkni og þátttöku bæjarbúa. Við þurfum að tryggja góðan aðbúnað, sinna viðhaldi betur og auka framboð á fjölbreyttum valkostum um leið og við hvetjum alla aldurshópa til þátttöku. Með því að efla innviði, auðveldum við fólki að hittast hvort sem það er í sundi, á æfingu, golfi, skátafundi, kaffihúsi eða í göngu.

Rannsóknir sýna að heimsfaraldurinn hefur haft alvarlegar afleiðingar á líðan fólks. Þátttaka í íþrótta- og tómstundastarfi eykur vellíðan og virkni og spornar gegn félagslegri einangrun. Öflugt íþrótta- og tómstundastarf hefur sennilega aldrei verið jafn mikilvægt og nú. Miðgarður mun nýtast öllum Garðbæingum vel og efla íþrótta- og tómstundastarf í bænum. Uppbygging og endurnýjun hefur verið á íþróttamannvirkjum á Álftanesi, í sumar verður ákveðnum áföngum lokið í kringum íþróttasvæðið en við þurfum að klára heildarskipulag svæðisins.

Eftirspurn og innviðir

Það er eftirsóknarvert að búa á Álftanesi. Ótvíræður vitnisburður þess er gríðarmikill áhugi á húsnæði þar og einnig á úthlutun lóða. Framundan er frekari uppbygging á Álftanesi og tryggja þarf áframhaldandi samtal og samráð við íbúa. Uppbyggingu og vexti fylgja fjárfestingar í innviðum. Í allri umræðu um innviði sveitarfélaga er mikilvægt að félagslegir innviðir gleymist ekki.

Það væri okkur svo til mikils sóma að fegra hringtorgið við Bessastaði.

Greinin birtist fyrst á Vísi, 25. febrúar 2022.

Áslaug Hulda Jónsdóttir © 2024. Allur réttur áskilinn.